.
07.04.2008 03:48:49 / omarinn

Afsökun

Þið verðið að afsaka bloggleysið mitt síðustu 22 mánuðina, ég hef bara ekki geta gert upp við mig hvað ég ætti að blogga um. Eftir að hafa vafrað um Moggabloggin núna undanfarnar klukkustundir hef ég ákveðið að henda inn einni færslu.

Nú er nefnilega svo komið að hann Þorvaldur er að verða 28 ára. Vil ég því nota tækifærið og óska honum til hamingju og biðja hann afsökunar á því að hafa gleymt því að blogga um það í fyrra. Ég hef ítrekað reynt að afhenda honum hinstu sakramenti en hann tórir nú samt, nánast laus við öll elliglöp.

Að þessu sögðu kveð ég í bili og vona að þið hættið ekki að heimsækja þessa síðu. Ég mun láta í mér heyra aftur, í síðasta lagi fyrir 9. maí 2009.

góðar stundir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 17:32:13 / omarinn

27 er næst.

Fyrir rúmlega ári síðan skrifaði ég þetta:

"...Þorvaldur Sævar verður 25 ára í næsta mánuði og tekur því við af
Guðfinnu Einarsdóttur sem elsti núlifandi Íslendingurinn. Doddi, einsog hann er kallaður, sagði við þetta tilefni að hann væri hress og heilsa hans væri góð, hann týnir þó símanum sínum og debetkorti annað slagið en er brattur að öðru leyti..."

Nú er svo komið að Doddi er að verða 26 ára, sem er gjörsamlega útí bláinn og dettur mér því engin gjöf í hug handa honum, nema þá kannski að afhenda honum hinstu sakramenti, sem ég ætla að gera.

Í kveðju kirkjunnar er sál hins látna að endingu “falin í hendur Guði”. Þetta er “hin hinsta kveðja þar sem hið kristna samfélag heilsar einum meðlima sinna áður en líkami hans er lagður í gröfina”. [192] Í hinni býsönsku trúarhefð er þetta látið í ljós með kveðjukossi til hins látna: Við þessa hinstu kveðju “syngjum vér yfir brotthvarfi hans frá þessu lífi og aðskilnaði frá oss en einnig vegna þess að það á sér stað samneyti og endurfundur. Því að jafnvel dáin erum vér alls ekki skilin að skiptum þar sem öll förum vér sömu leið og hittumst aftur á sama stað. Vér verðum aldrei aðskila því að vér lifum fyrir Krist og nú erum vér sameinuð Kristi á leið okkar til hans … og öll verðum vér saman í Kristi.” 

» 7 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 20:45:46 / omarinn

Þegar maður hefur ekkert að gera á netinu, né í lífinu.

Ég sá tvo fullorðna menn i sjónvarpssal um daginn. Nöfnin birtust á skjánum undir fagurbrúnum andlitum þeirra og voru annarsvegar hetjunafn úr Íslendingasögunum og hinsvegar samsett nafn ættað úr Nýja Testamentinu.

Ekki reyndist það nógu gott því það fyrsta sem þeir tóku fram var að þeir vildu ekki láta kalla sig skírnarnöfnum sínum heldur væru þeir kallaðir annarsvegar Gillsenegger og hinsvegar Partý-Hanz.

Þeir eru svo með heimasíðu, www.kallarnir.is, sem er svosem ágætlega vel sótt þótt hún eigi reyndar ekkert í heimsóknafjöldann á þessari síðu og vísa ég til teljarans uppí horninu sem sannar það.


Allavega, ég er að lesa þessa síðu og fyrir neðan nokkrar módelmyndir sem þeir hafa tekið af sjálfum sér eru þeir að tala um að fjórði og síðasti sjónvarpsþátturinn í seríunni þeirra verði sýndur á næstunni. Eða einsog þeir orðuðu þetta sjálfir:


[“Þetta er síðasti þátturinn í þessari "seríu" Það er möguleiki á því að eitthvað verði um aftappanir í þættinum, þannig að þeir sem eru hjartveikir eða illa horny á því er bent á að horfa bara á eitthvað annað.

þangað til næst.

dreng.

Jóhann, tappaði af Kl 16:42 “]

Jújú, svo fer folk að setja comment og það er augljóslega enginn betri að svara fyrir sig heldur en sjálfur Partý-Hanz.

Fyrst kemur maður undir nafninu “gaur” sem segir að þeir séu eitthvað miður greindir og talar um brúnku og ljósatíma í kaldhæðni. Hann hefði nú betur haldið sig á mottunni því Partý Hanz dritar til baka og segir ...

“Hey gaur, lærðu stafsetningu ef þú ætlar að vera með gáfumannshroka..”

Partý-Hanz orðinn heitur.

Þá víkur sögunni til Slóveníu, þar er Gústaf Hannibal staddur og er að breiða út Gunnarsson heimspekina til þeirra sem minna mega sín. Þess á milli drepur hann tímann á internetinu.
Hann hefur greinilega ratað inná www.kallarnir.is og tekur þátt í þessum ritdeilum og skrifar.

["Frabaert hvernig tid reddid ykkur fra tvi ad vera kanselladir med tvi ad segja ad tad attu bara ad vera 4 thaettir. Ehemm...truir einhver tessu?
Hverjum dettur i hug ad tid gerird samning um fjora thaetti og sidan er fjordi thatturinn outtakes. Ef einhver truir tessu ta er hann med royal i hausnum


["Gustaf, ég gerði samning við mömmu þína um 4 drætti og síðasti drátturinn var einmitt ekkert nema out-takes.
Þetta er því ekkert óalgengt.
Ég ætlaði líka að spyrja? Hvar er korkurinn þinn?

["Skemmtilegt ad tad hafi tekid tig 3 minutur ad svara mer, mamma sagdi ad tad vaeri skemmtileg tilviljun. Gott samt ad tu sert alveg ohraeddur ad segja folki fra tvi ad tu seljir tig midaldra konum. Tad tharf meiri hreinskilni i thennan heim.



 

 



 

 



 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 19:54:29 / omarinn

Tjáning

Í krafti tjáningafrelsis er ég tilneyddur að birta þessa skopmynd sem ég gerði af Búdda.



Mæli ekki með ferðalögum til Tælands eða Kambódíu.

» 15 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 15:21:44 / omarinn

Blogg

 

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og..

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.

4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.

Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!


» 106 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 05:40:03 / omarinn

Þetta er svo vont!

Íslenskt sjónvarp gjörsamlega rústaði lífi mínu í kvöld.

Var mig að dreyma eða var Gréta í alvörunni að láta þetta verða þannig að Snorri væri látinn fara heim bara til þess að einhver Haukur sem er einn af áhöfninni gæti komið inn í staðin. Þetta er agalegt. Ég segi nú bara einsog heyrðist í einum skipsmanna; "það er ekkert ástarfley án selsins".

Svo hafnaði Íris rósinni. Alveg dísess kræst róum okkur á því drama. Steini situr því uppi með Gunnfríði þarna inni ennþá.

Svo er það Þór. Gaurinn sem verður í mínum augum alltaf Herra Ísland. Lang flottastar og átti alltaf að sigra þetta, gleymdist bara að búa til innhringinúmer fyrir hann, og þar sem þetta var eingöngu síma-kosning fékk hann ekkert atkvæði, það var jú ekki hægt að kjósa hann. S1 ber ábyrgð á þessu.

Meðan ég sit og bölva íslensku raunveruleikasjónvarpi þá viðheld ég kúlinu þannig að í heyrnartólunum mínum ómar fagur rödd stórborgarskáldanna úr Getó drengjum "damn it feels good to be a gangster" ....

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.10.2005 10:17:42 / omarinn

Klukk

Ég ætla að klukka:

Björn Bjarnason www.bjorn.is
Fazmo klíkuna.

» 78 hafa sagt sína skoðun

18.08.2005 03:11:41 / omarinn

Master

Haffi

» 1 hafa sagt sína skoðun


Könnun
Hefuru séð Tomma og Jenna þáttinn þar sem Jenni er inní píanóinu og Tommi er reyna að halda tónleika en Jenni truflar hann sífellt.